Áspreyjaðar sólarrafhlöður?
Posted in: erlent | Comments (0)
Rannsóknarmenn National Institute of Standards and Technology hafa uppgötvað að lífrænt hálfleiðandi efni gæti gert mönnum kleift að spreyja sólarrafhlöðu beint á yfirborð í framtíðinni!
Núna eru flestar sólarrafhlöður gerðar úr sílikoni. Og þó að efnið sé hentugt tækninni hefur það sína galla, það er dýrt, tekur mikla orku og er mjög stíft. Sólarrafhlöður úr lífræna hálfleiðandi efninu yrðu ódýrari, tæku minni orku og leyfir yfirborðinu sem það yrði sett á að bogna og brotna án þess að skemma efnið. Einnig yrðu möguleikarnir á nýtingu mun fleiri, því það er einfaldlega hægt að spreyja þessu á yfirborð, svipað og málningu, fyrir utan kostnaðinn sem sparast með því að nota þá aðferð.
Þetta er stórt skref í græna átt, þó það megi ekki búast við þessu á markaðinn á næstunni. Þó það sé búið að gera uppgötvunina á enn eftir að bæta tæknina mikið.
Anna Louise @ April 14, 2010
Henti rúmum sjö milljónum í ruslið!
Posted in: skondið, skrítið | Comments (1)
Rómanskir fréttamiðlar hafa greint frá því að Rómönsk fjölskylda sem faldi 40.000,- evrur (7.225.800,- ISK á núverandi gengi) í gömlum skóm hafi nú fengið hluta peninganna til baka, eftir að húsmóðirin, Roxana T. (35) henti skónum í jólahreingerningunni. Þá fann hún gamla skó af eigimanni sínum, Calin T. (40), inni í fataskáp. Þau voru að spara til að geta byggt nýtt hús, og geymdu peningana í íbúðinni því þau treystu ekki bönkum. Calin breytti felustað peninganna án þess að tryggja það að Roxana vissi hvar þeir voru; “I told her but she may not have been paying attention” (Ég sagði henni [hvar peningarnir voru] en það gæti verið að hún hafi ekki verið að hlusta).
Þetta var í borginni Alba Iulia, en hjónin höfðu samband við lögregluna sem hafði upp á Maria Boti (54), sem hafði fundið peningana og samið um húsakaup fyrir 22.000,- evrur. Maria hafði tekið skóna úr ruslinu með það í huga að selja þá á flóamarkað í nágrenninu.
Fjölskyldan fékk 11.000,- evrur til baka frá konunni, og húsakaupunum var rift og fengu þau 19.000,- frá fólkinu sem ætlaði að selja húsið. Afganginum hafði Maria eytt í jólainnkaup, en hún á yfir höfði sér þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa ekki upplýst um peningafundinn.
Anna Louise @ January 7, 2010
